Við veitum viðskiptavinum okkar ráðgjöf um lög og reglur og gætum hagsmuna þeirra gagnvart stjórnvöldum og fyrir dómstólum. Á meðal viðskiptavina okkar eru einstaklingar, fyrirtæki, fjármálafyrirtæki, sveitarfélög og ríkisstofnanir.
Einstaklingar
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu en stærð lögmannsstofunnar tryggir að þú hefur ávallt greiðan aðgang að þeim lögmanni sem gætir hagsmuna þinna.
Fyrirtæki
Við veitum innlendum og erlendum fyrirtækjum ráðgjöf um lög og reglur og önnumst hagsmunagæslu fyrir þau gagnvart stjórnvöldum og fyrir dómstólum.
Opinberir aðilar
Við veitum ríki og sveitarfélögum ráðgjöf um lögfræðileg álitaefni og gætum hagsmuna þeirra í ágreiningsmálum fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum.