GUÐMUNDUR ÓLI BJÖRGVINSSON

Sérsvið

  • Eignarnám, landskipti og landamerki
  • Fasteignir
  • Félagaréttur
  • Fjármálafyrirtæki, verðbréfasjóðir og vátryggingafélög
  • Fjármögnun fyrirtækja
  • Lífeyrissjóðir
  • Málflutningur og gerðarmeðferð
  • Samkeppnisréttur
  • Samruna og áreiðanleikakannanir
  • Skaðabóta- og vátryggingaréttur
  • Skiptastjórn og fjárhagsleg endurskipulagning
  • Stjórnskipunarréttur og mannréttindi
  • Útboð – Opinber innkaup
  • Verjendastörf og réttargæsla

LÖGMAÐUR – EIGANDI

Guðmundur Óli hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Hann lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1998. Að námi loknu starfaði hann um skamma hríð sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Vestfjarða en stofnaði síðan lögmannsstofu í félagi við Halldór Helga Backman. Guðmundur Óli gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2010.

Guðmundur Óli hefur sérþekkingu á félaga- og fjármunarétti og mikla reynslu af lagaumhverfi nýsköpunar- og tæknifyrirtækja. Hann hefur jafnframt víðtæka reynslu af skiptastjórn og endurskipulagningu á fjárhag fyrirtækja. Á undanförnum árum hefur Guðmundur Óli mest sinnt ráðgjöf í tengslum við kaup, sölu og fjármögnun fyrirtækja hér á landi og erlendis auk þess sem hann hefur átt sæti í stjórnum nokkurra félaga. Guðmundi Óla er oft falið að veita lögfræðiálit í tengslum við áreiðanleikakannanir og gerð lánasamninga en hann talar reiprennandi ensku og norsku og tekur meðal annars að sér verkefni á þeim tungumálum.

Á undanförnum árum hefur Guðmundur Óli í fjölmörg skipti veitt ráðgjöf í tengslum við þátttöku íslenskra fyrirtækja í opinberum útboðum sveitarfélaga á Norðurlöndunum.

MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI

STARFSFERILL

  • Lögmaður, LAGASTOÐ, 2010-
  • Lögmaður, B&B Lögmenn ehf., 1998-2009
  • Aðstoðarmaður dómara, Héraðsdómur Vestfjarða, 1998

MENNTUN

  • Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands, 1998
  • Stúdentspróf frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, 1992

KENNSLA

  • Leiðbeinandi í Norrænu málflutningskeppninni, 2000-
  • Kennsla í Eignarétti II við Háskólann á Bifröst, 2009
  • Kennsla í réttindanámi fasteignasala við Endurmenntun Háskóla Íslands

FÉLAGS- OG TRÚNAÐARSTÖRF

  • Formaður körfuknattleiksdeildar ÍR, 2017-19
  • Formaður Club Lögberg, liðs lagadeildar Háskóla Íslands í Norrænu málflutningskeppninni, 2009-

TUNGUMÁL

  • Enska
  • Norska
  • Sænska
  • Danska