GUÐBJARNI EGGERTSSON

Sérsvið

  • Fasteignir
  • Félagaréttur
  • Málflutningur og gerðarmeðferð
  • Samningaréttur og samningsgerð
  • Skaðabóta- og vátryggingaréttur
  • Verjendastörf og réttargæsla
  • Verktakaréttur
  • Vinnu- og vinnumarkaðsréttur

LÖGMAÐUR – EIGANDI

Guðbjarni hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands auk þess að vera löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Guðbjarni lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 2003, hlaut réttindi sem löggiltur fasteignasali og til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum 2004 og Hæstarétti Íslands 2013. Guðbjarni gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2020.

Guðbjarni veitir ráðgjöf á fjölmörgum réttarsviðum en hann hefur meðal annars sérhæft sig í verktaka- og vinnurétti og ágreiningsmálum tengdum fasteignaviðskiptum. Hann er iðulega dómkvaddur sem matsmaður og hefur setið sem sérfróður meðdómsmaður í héraðsdómi og Landsrétti. Guðbjarni veitir meðal annars stéttarfélögum og félagasamtökum ráðgjöf og á sæti í stjórnum nokkurra félaga, þar á meðal ORF Líftækni hf. og Bioeffect ehf. Guðbjarni hefur mikla reynslu af málflutningi, bæði í einkamálum og sem verjandi í sakamálum.

MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI

STARFSFERILL

  • Lögmaður, LAGASTOÐ, 2020-
  • Lögmaður, Lögmannsstofa Guðbjarna Eggertssonar ehf., 2008-20
  • Lögmaður, Lögmenn Laugardal ehf. og Miðborg fasteignsala ehf., 2003-8

ÖNNUR STÖRF

  • Dómari í Félagsdómi, 2023
  • Sérfróður meðdómsmaður í Héraðsdómi Suðurlands, 2015, Héraðsdómi Reykjavíkur, 2021 og Héraðsdómi Reykjaness 2023
  • Settur ríkissaksóknari vegna beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku á hæstaréttarmálinu nr. 214/1974, 2022
  • Sérfróður meðdómsmaður í Landsrétti, 2021

MENNTUN

  • Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands, 2003
  • Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund, 1997

TUNGUMÁL

  • Enska
  • Norðurlandamál