5. júlí 2023 – Kröfu Kara Connect ehf. vísað frá héraðsdómi.

Með úrskurði Landsréttar 3. júlí sl. var kröfu Kara Connect ehf. (KC) á hendur embætti landlæknis, Origo hf., Sensa ehf. og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vísað frá héraðsdómi. Málshöfðun KC á rætur að rekja til úrskurðar kærunefndar útboðsmála þar sem fjallað var um innkaup embættis landlæknis og Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins á hugbúnaðarþjónustu. Í málinu krafðist KC þess meðal annars að úrskurður kærunefndar útboðsmála yrði ógiltur að því leyti sem kröfum fyrirtækisins sem vörðuðu innkaup á þróun Sögu sjúkraskrárkerfis og viðbótum við kerfið hefði verið hafnað.

Í úrskurði Landsréttar var talið að framsetning kröfugerðar KC í málinu og málatilbúnaður fyrirtækisins fullnægði ekki áskilnaði laga um meðferð einkamála. Af þeim sökum bæri að vísa kröfu fyrirtækisins frá héraðsdómi.

Dagmar Sigurðardóttir og Gizur Bergsteinsson lögmenn hjá LAGASTOÐ lögfræðiþjónustu gættu hagsmuna embættis landlæknis við meðferð málsins.