Dagmar Sigurðardóttir
516 4000
dagmar [hjá] lagastod.is
Sérsvið
- Auðlindir, orka og umhverfismál
- Evrópuréttur/EES-réttur
- Eignarnám, landskipti og landamerki
- Fasteignir
- Lífeyrissjóðir
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Skiptastjórn og fjárhagsleg endurskipulagning
- Stjórnskipunarréttur og mannréttindi
- Sveitarfélög
- Útboð – Opinber innkaup
- Verjendastörf og réttargæsla
LÖGMAÐUR – EIGANDI
Dagmar hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum. Hún lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1994 og meistaranámi í sjávarútvegsfræðum frá sömu deild 2005. Dagmar hlaut lögmannsréttindi árið 2000 og réttindi til sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa árið 2015. Dagmar starfaði sem lögmaður Landhelgisgæslunnar 2001-13, sviðsstjóri lögfræðisviðs Ríkiskaupa 2013-20 og lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu 2020-21. Dagmar gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2021.
Dagmar hefur meðal annars sérhæft sig í álitaefnum tengdum opinberum innkaupum, þ.e. samningsgerð og útboðum opinberra aðila á vöru-, þjónustu- og verkframkvæmdum, og gætt hagsmuna opinberra aðila hvort tveggja fyrir kærunefnd útboðsmála og dómstólum. Jafnframt kennir Dagmar á námskeiðum um opinber innkaup hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og víðar. Dagmar veitir ráðgjöf á fjölmörgum réttarsviðum en hún hefur meðal hefur víðtæka þekkingu á opinberri stjórnsýslu, þar á meðal stjórnsýslurétti, opinberum starfsmannarétti og löggjöf um persónuvernd. Þá hefur hún komið að samningu fjölmargra lagafrumvarpa og reglugerða og átt sæti í nefndum á vegum hins opinbera.
MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI
STARFSFERILL
- Lögmaður, LAGASTOÐ, 2021-
- Lögfræðingur, Dómsmálaráðuneytið, 2020-21
- Sviðsstjóri lögfræðisviðs, Ríkiskaup, 2013-20
- Yfirlögfræðingur, Landhelgisgæsla Íslands, 2001-13
- Lögmaður, Lög og réttur ehf., 1999-2001
- Innheimtustjóri og sýslumannsfulltrúi, Sýslumaðurinn í Keflavík, 1995-96
MENNTUN
- Diplómapróf frá Rhodes Academy of Oceans Law and Policy, 2019
- Meistarapróf í sjávarútvegsfræðum frá lagadeild Háskóla Íslands, 2005
- Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands, 1994
- Stúdentspróf frá Menntaskólanum á Laugarvatni, 1986
KENNSLA
- Kennsla á námskeiðum um opinber innkaup á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands, Stofnunar stjórnsýslufræða og Lögmannafélags Íslands, 2015-22
- Leiðbeinandi við meistararitgerð við lagadeild Háskólans í Reykjavík, 2008
TUNGUMÁL
- Enska
- Þýska
- Franska
- Norðurlandamál