19. mars 2022 – Sigur í deilumáli um rétt til bílastæðis.

Marteinn Másson hæstaréttarlögmaður hjá Lagastoð hafði sigur fyrir hönd umbjóðanda síns í deilumáli nágranna um rétt til bílastæðis.  Deilan snérist um rétt eins eiganda til bílastæðis sem hann taldi að tilheyrði sinni íbúð en því höfnuðu nágrannar hans sem töldu bílastæðið vera í sameign.  Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu er þinglýst eignarheimild samkvæmt afsali látin ráða niðurstöðunni, en ekki eignaskiptayfirlýsing sem sagði ekkert um eignarhald á umræddu bílastæði. Sjá nánar frétt Ríkisútvarpsins um málið.

Marteinn Másson og lögmenn LAGASTOÐAR búa yfir áratugareynslu í úrlausn deilumála sem varða ágreining um fasteignir.