petur [hjá] lagastod.is
Pétur Örn Sverrisson



516 4000

Pétur Örn Sverrisson
LÖGMAÐUR – EIGANDI
Pétur Örn hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Hann lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1994, prófi í verðbréfamiðlun 1998 og MBA-gráðu frá Stokkhólmsháskóla 2003. Pétur Örn hlaut réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum 1996 og Hæstarétti Íslands 2010. Pétur Örn gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2020.
Pétur Örn hefur sérþekkingu á félaga- og fjármunarétti og hefur veitt margvíslega ráðgjöf í tengslum við orku- og auðlindamál. Þá hefur hann mikla reynslu af skiptastjórn en hann var framkvæmdastjóri LBI hf. í slitameðferð 2009-2016. Pétur Örn hefur mikla reynslu af málflutningi og hefur meðal annars komið að rekstri fjölda dómsmála fyrir erlendum dómstólum. Á undanförnum árum hefur Pétur Örn sinnt almennri lögmannsþjónustu og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila.
MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI
- Hæstiréttur Íslands
- Landsréttur
- Héraðsdómstólar
STARFSFERILL
- LAGASTOÐ 2020-
- Lögmannsstofan Quorum sf. 2016-2019
- LBI hf. 2009-2016
- Landsbanki Íslands hf. 2006-2009
- Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið 2003-2006
- Norræni fjárfestingarbankinn 2002
- Sjálfstætt starfandi lögmaður og rekstur fasteignasölu 1996-2001
- Landssamband íslenskra útvegsmanna 1994-1996
MENNTUN
- MBA gráða frá viðskiptadeild Stokkhólmsháskóla 2003
- Próf í verðbréfamiðlun 1998
- Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands 1994
- Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1989
TUNGUMÁL
- Enska
- Sænska
- Danska
- Þýska
FÉLAGS- OG TRÚNAÐARSTÖRF
- Varaformaður Hestamannafélagsins Spretts 2019-
- Formaður úrskurðarnefndar raforkumála 2013-2018
- Formaður kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa 2012-2016
- Formaður tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta 2004-2006
Sérsvið
- Auðlindir, orka og umhverfismál
- Eignarnám, landskipti og landamerki
- Fasteignir
- Félagaréttur
- Fjármálafyrirtæki, verðbréfasjóðir og vátryggingafélög
- Fjármögnun fyrirtækja
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Samrunar og áreiðanleikakannanir
- Skaðabóta- og vátryggingaréttur
- Skiptastjórn og fjárhagsleg endurskipulagning
- Verjendastörf og réttargæsla