solvi [hjá] lagastod.is
Sölvi Davíðsson



516 4000

Sölvi Davíðsson
LÖGMAÐUR – EIGANDI
Sölvi hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum og Landsrétti. Hann lauk meistaraprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 2009 og hlaut réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum ári síðar. Sölvi starfaði sem fulltrúi hjá LAGASTOÐ 2009-2017, var sjálfstætt starfandi lögmaður 2017-2020 og gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2020.
Sölvi hefur sérþekkingu á sviði félaga- og fjármunaréttar. Þá hefur hann mikla reynslu af skiptastjórn en hann veitti LBI hf. (áður Landsbanka Íslands hf.) margvíslega ráðgjöf á árunum 2009-2016. Á undanförnum árum hefur Sölvi sinnt almennri lögmannsþjónustu og hagsmunagæslu í þágu einstaklinga, fyrirtækja og opinberra aðila en hann hefur meðal annars veitt fiskeldisfyrirtækjum ráðgjöf og annast hagsmunagæslu fyrir þau. Sölvi tekur að sér málflutning í einkamálum og verjandastörf í sakamálum.
MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI
- Landsréttur
- Héraðsdómstólar
MENNTUN
- Meistarapróf frá lagadeild Háskóla Íslands 2009
- BA-próf frá lagadeild Háskóla Íslands 2007
- Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands 2004
TUNGUMÁL
- Enska
- Norðurlandamál
STARFSFERILL
- LAGASTOÐ 2009-2017 & 2020-
- SD lögmannsstofa ehf. 2017-2020
- OPUS lögmenn ehf. 2008-2009
- Glitnir banki hf. 2006-2008
ÖNNUR STÖRF
- Sérstaklega skipaður (ad hoc) formaður kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa í sjö málum 2018-2020
- Ritari úrskurðarnefndar lögmanna 2017-
KENNSLA
- Kennsla við lagadeild Háskóla Íslands 2009
Sérsvið
- Auðlindir, orka og umhverfismál
- Evrópuréttur/EES-réttur
- Fasteignir
- Félagaréttur
- Fjármálafyrirtæki, verðbréfasjóðir og vátryggingafélög
- Fjármögnun fyrirtækja
- Fjölskyldumál – Hjón, sambúðarfólk, börn og erfðir
- Höfunda- og hugverkaréttur
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Samkeppnisréttur
- Samrunar og áreiðanleikakannanir
- Skaðabóta- og vátryggingaréttur
- Sveitarfélög
- Verjendastörf og réttargæsla