Gizur Bergsteinsson
516 4040
gizur [hjá] lagastod.is
Sérsvið
- Evrópuréttur/EES-réttur
- Félagaréttur
- Fjármögnun fyrirtækja
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Samkeppnisréttur
- Skattar og þjónustugjöld
- Skiptastjórn og fjárhagsleg endurskipulagning
- Stjórnskipunarréttur og mannréttindi
- Sveitarfélög
- Útboð – Opinber innkaup
LÖGMAÐUR – EIGANDI OG FRAMKVÆMDASTJÓRI
Gizur er framkvæmdastjóri LAGASTOÐAR. Hann hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Gizur lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1998 og LL.M. gráðu í félaga- og viðskiptarétti frá University College London 2004. Hann hefur starfað sem lögmaður frá 2005 en fyrir þann tíma starfaði hann sem lögfræðingur hjá yfirskattanefnd og umboðsmanni Alþingis og síðar sem aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt Íslands. Gizur gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2010.
Gizur sérhæfir sig í málarekstri fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum en hann hefur meðal annars flutt mál umbjóðenda sinna fyrir héraðsdómstólunum, Landsrétti, Hæstarétti Íslands og EFTA-dómstólnum. Þá hefur hann gætt hagsmuna umbjóðenda sinna fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu og dómstóli Evrópusambandsins. Gizur veitir ráðgjöf á fjölmörgum réttarsviðum en hann hefur sérþekkingu á samkeppnisrétti, reglum um ríkisaðstoð, félagarétti, skattarétti og málefnum sveitarfélaga. Á undanförnum árum hefur Gizur einkum veitt ríkisstofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum ráðgjöf auk þess sem hann hefur tekið að sér að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna í ágreiningsmálum fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum.
MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI
STARFSFERILL
- Lögmaður, LAGASTOÐ, 2010-
- Lögmaður, Lögmannsstofa Gizurar Bergsteinssonar ehf., 2005-7 og 2008-9
- Lögmaður, Kaupþing banki hf., 2007-8
- Aðstoðarmaður dómara, Hæstiréttur Íslands, 2001-3 og 2004-5
- Lögfræðingur, yfirskattanefnd og umboðsmaður Alþingis, 1998-2001
ÖNNUR STÖRF
- Varadómari í Landsrétti, 2023
- Nefndarmaður í réttarfarsnefnd, 2022-
- Nefndarmaður í endurupptökunefnd, 2018-20
- Nefndarmaður í áfrýjunarnefnd neytendamála, 2005-7
MENNTUN
- LL.M. gráða í félaga- og viðskiptarétti frá University College London, 2004
- Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands, 1998
- Skiptinám í sakamálaréttarfari og mannréttindum við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla, 1998
- Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, 1993
KENNSLA OG RITSTÖRF
- Prófdómari í munnlegum prófum í samkeppnisrétti og við meistaravarnir á ýmsum réttarsviðum við lagadeild Háskóla Íslands, 2011-
- „Áfrýjunarstefna í einkamáli“, birt í Afmælisriti Markúsar Sigurbjörnssonar, Fons Juris útgáfa, 2024
- „Áfrýjun héraðsdóms í einkamáli til Landsréttar“, birt í ritinu Hæstiréttur og Háskóli Íslands, Fons Juris útgáfa, 2021
- Kennsla í einkamálaréttarfari við lagadeild Háskóla Íslands, 1998-2008, 2013 og 2015
- Prófdómari við meistaravörn við lagadeild Háskólans í Reykjavík, 2013
- Kennsla í einkamálaréttarfari á námskeiði til öflunar lögmannsréttinda, 2006-7
- Leiðbeinandi BA-ritgerðarnema við lagadeild Háskóla Íslands, 2006
- Umsjón með námskeiðinu BA-ritgerð í lögfræði við lagadeild Háskóla Íslands, 2005-6
FÉLAGS- OG TRÚNAÐARSTÖRF
- Nefndarmaður í siðareglunefnd Lögmannafélags Íslands, 2019-
- Formaður stjórnar foreldrafélags Réttarholtsskóla, 2020-21
- Nefndarmaður í ritrýninefnd tímaritsins Lögréttu, 2005-7
- Stjórnarmaður og síðar formaður Bókaútgáfu Orators, 1998-2003
- Framkvæmdastjóri Bókaútgáfu Orators, 1995-7
TUNGUMÁL
- Enska
- Þýska
- Danska