Ráðstefnan „Straumar og stefnur í opinberum innkaupum“

Lögfræðingafélag Íslands í samstarfi við ISAVIA, Lagastoð lögfræðiþjónustu ehf. og norsku lögfræðistofuna Arntzen stendur fyrir ráðstefnu um opinber innkaup miðvikudaginn 3. september nk. Tilgangurinn með ráðstefnunni er að lögfræðingar og aðrir sérfræðingar sem vinna að opinberum innkaupum geti borið saman bækur sínar og fengið fréttir af því nýjasta sem er á seyði, bæði hér á landi og erlendis. Ráðstefnan verður haldinn í Akoges-salnum, Lágmúla 4, Reykjavík. Skráningargjald er 5.000 kr.

Dagskrá ráðstefnunnar og skráningarform er að finna hér: