Með dómi Hæstaréttar í dag var staðfest niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli Enska boltans um að Síminn hf. hafi brotið gegn sátt fyrirtækisins við Samkeppniseftirlitið. Var Símanum gert að greiða 400 m. kr. sekt í ríkissjóð vegna brotsins. Umræddri sátt var ætlað að koma í veg fyrir að Síminn gæti nýtt hið breiða þjónustuframboð sitt til þess að takmarka samkeppni almenningi til tjóns.
Sjá nánar frétt á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.
Gizur Bergsteinsson, lögmaður og einn eigenda LAGASTOÐAR, gætti hagsmuna Samkeppniseftirlitsins og íslenska ríkisins við meðferð málsins fyrir Hæstarétti.