24. febrúar 2023 – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi í meiðyrðamáli.

Með dómi Landsréttar 9. desember 2022 var staðfestur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli umbjóðanda Kristins Bjarnasonar, lögmanns og eins eigenda LAGASTOÐAR. Með dóminum var umbjóðandi Kristins sýknaður af kröfu Menntamiðstöðvarinnar ehf. um ómerkingu ummæla og greiðslu skaðabóta. Ummælin hafði hann látið falla í sjónvarpsþætti þar sem fjallað var um nám við Ferðamálaskóla Íslands. Landsréttur taldi ummælin hluta af opinberri umræðu um menntamál leiðsögumanna. Hefðu ummælin beinst að atvinnufyrirtæki sem bauð almenningi þjónustu en ekki einstaklingi og yrðu slík fyrirtæki að þola meiri gagnrýni. Var talið að meta yrði ummælin heildstætt sem gildisdóm sem hefði átt sér næga stoð í staðreyndum. Menntamiðstöðin ehf. óskaði í kjölfarið eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar. Með ákvörðun Hæstaréttar í dag var beiðni fyrirtækisins hafnað.

Lögmenn LAGASTOÐAR veita bæði einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf um hversu langt má ganga í umfjöllun um málefni þeirra á opinberum vettvangi.