14. október 2022 – Sigur í máli um skaðabætur vegna fasteignakaupa.

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag umbjóðendur Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, lögmanns og eins eigenda LAGASTOÐAR lögfræðiþjónustu ehf., af kröfu kaupanda hesthúss um skaðabætur vegna ætlaðs galla á hesthúsinu. Sjá nánar dóm Héraðsdóms Reykjavíkur.

Lögmenn LAGASTOÐAR hafa sérþekkingu á lagareglum um fasteignakaup, þar með talið málum vegna ætlaðra galla á fasteign, og taka að sér að gæta hagsmuna bæði kaupenda og seljenda.