Pétur Örn Sverrisson
516 4040
petur [hjá] lagastod.is
Sérsvið
- Auðlindir, orka og umhverfismál
- Eignarnám, landskipti og landamerki
- Fasteignir
- Félagaréttur
- Fjármálafyrirtæki, verðbréfasjóðir og vátryggingafélög
- Fjármögnun fyrirtækja
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Samrunar og áreiðanleikakannanir
- Skaðabóta- og vátryggingaréttur
- Skiptastjórn og fjárhagsleg endurskipulagning
- Verjendastörf og réttargæsla
LÖGMAÐUR – EIGANDI
Pétur Örn hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Hann lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1994, prófi í verðbréfamiðlun 1998 og MBA-gráðu frá Stokkhólmsháskóla 2003. Pétur Örn hlaut réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum 1996 og Hæstarétti Íslands 2010. Pétur Örn gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2020.
Pétur Örn hefur sérþekkingu á félaga- og fjármunarétti og hefur veitt margvíslega ráðgjöf í tengslum við orku- og auðlindamál. Þá hefur hann mikla reynslu af skiptastjórn en hann var framkvæmdastjóri LBI hf. í slitameðferð 2009-16. Pétur Örn hefur mikla reynslu af málflutningi og hefur meðal annars komið að rekstri fjölda dómsmála fyrir erlendum dómstólum. Á undanförnum árum hefur Pétur Örn sinnt almennri lögmannsþjónustu og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila.
MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI
STARFSFERILL
- Lögmaður, LAGASTOÐ, 2020-
- Lögmaður, Lögmannsstofan Quorum sf., 2016-19
- Framkvæmdastjóri LBI hf., 2009-16
- Lögmaður, Landsbanki Íslands hf., 2006-9
- Lögfræðingur, Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, 2003-6
- Lögfræðingur, Norræni fjárfestingarbankinn, 2002
- Sjálfstætt starfandi lögmaður og löggiltur fasteignasali 1996-2001
- Lögfræðingur, Landssamband íslenskra útvegsmanna 1994-6
ÖNNUR STÖRF
- Formaður úrskurðarnefndar raforkumála, 2013-18
- Formaður kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa, 2012-16
- Formaður tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta, 2004-6
MENNTUN
- MBA gráða frá viðskiptadeild Stokkhólmsháskóla, 2003
- Próf í verðbréfamiðlun, 1998
- Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands, 1994
- Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík, 1989
FÉLAGS- OG TRÚNAÐARSTÖRF
- Varaformaður Hestamannafélagsins Spretts 2019-
TUNGUMÁL
- Enska
- Sænska
- Danska
- Þýska