Dómsmálaráðherra hefur skipað Gizur Bergsteinsson, hæstaréttarlögmann og einn eigenda LAGASTOÐAR lögfræðiþjónustu ehf., til að taka sæti í réttarfarsnefnd. Skipunartími er frá 1. mars 2022 til 28. febrúar 2027.
Réttarfarsnefnd er fastanefnd skipuð af dómsmálaráðherra og hefur það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar á sviði réttarfars. Helstu verkefni nefndarinnar eru að vera dómsmálaráðherra til ráðgjafar um samningu frumvarpa og annarra reglna á sviði réttarfars, semja frumvörp og aðrar reglur að beiðni ráðherra á því sviði og í samræmi við áætlun og áherslur ráðherra, og veita umsagnir um frumvörp og aðrar tillögur er varða réttarfar.
Sjá nánar frétt á vef Stjórnarráðsins.