GUÐBJARNI EGGERTSSON
516 4040
gudbjarni [hjá] lagastod.is
Sérsvið
- Fasteignir
- Félagaréttur
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Samningaréttur og samningsgerð
- Skaðabóta- og vátryggingaréttur
- Verjendastörf og réttargæsla
- Verktakaréttur
- Vinnu- og vinnumarkaðsréttur
LÖGMAÐUR – EIGANDI
Guðbjarni hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands auk þess að vera löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Guðbjarni lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 2003, hlaut réttindi sem löggiltur fasteignasali og til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum 2004 og Hæstarétti Íslands 2013. Guðbjarni gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2020.
Guðbjarni veitir ráðgjöf á fjölmörgum réttarsviðum en hann hefur meðal annars sérhæft sig í verktaka- og vinnurétti og ágreiningsmálum tengdum fasteignaviðskiptum. Hann er iðulega dómkvaddur sem matsmaður og hefur setið sem sérfróður meðdómsmaður í héraðsdómi og Landsrétti. Guðbjarni veitir meðal annars stéttarfélögum og félagasamtökum ráðgjöf og á sæti í stjórnum nokkurra félaga, þar á meðal ORF Líftækni hf. og Bioeffect ehf. Guðbjarni hefur mikla reynslu af málflutningi, bæði í einkamálum og sem verjandi í sakamálum.
MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI
STARFSFERILL
- Lögmaður, LAGASTOÐ, 2020-
- Lögmaður, Lögmannsstofa Guðbjarna Eggertssonar ehf., 2008-20
- Lögmaður, Lögmenn Laugardal ehf. og Miðborg fasteignsala ehf., 2003-8
ÖNNUR STÖRF
- Dómari í Félagsdómi, 2023
- Sérfróður meðdómsmaður í Héraðsdómi Suðurlands, 2015, Héraðsdómi Reykjavíkur, 2021 og Héraðsdómi Reykjaness 2023
- Settur ríkissaksóknari vegna beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku á hæstaréttarmálinu nr. 214/1974, 2022
- Sérfróður meðdómsmaður í Landsrétti, 2021
MENNTUN
- Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands, 2003
- Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund, 1997
TUNGUMÁL
- Enska
- Norðurlandamál