Marteinn Másson
516 4040
marteinn [hjá] lagastod.is
Sérsvið
- Auðlindir, orka og umhverfismál
- Eignarnám, landskipti og landamerki
- Fasteignir
- Félagaréttur
- Fjölskyldumál – Hjón, sambúðarfólk, börn og erfðir
- Höfunda- og hugverkaréttur
- Innheimta vanskilakrafna
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Skaðabóta- og vátryggingaréttur
- Verjendastörf og réttargæsla
- Verktakaréttur
LÖGMAÐUR – EIGANDI
Marteinn hefur réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Marteinn lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1986, stundaði framhaldsnám við Kaupmannahafnarháskóla 1988-89, hlaut réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómstólunum 1999 og Hæstarétti Íslands 2006. Marteinn starfaði sem framkvæmdastjóri Lögmannsfélags Íslands 1990-99 og sem sjálfstætt starfandi lögmaður 1999-2019. Marteinn gekk í eigendahóp LAGASTOÐAR 2020.
Marteinn hefur meðal annars sérþekkingu á verktaka- og útboðsrétti og ágreiningsmálefnum tengdum fasteignum, þar með talið skipulags- og byggingarmálum, eignarnámsmálum, landskiptamálum og landamerkjamálum. Þá hefur Marteinn mikla reynslu af skiptastjórn, bæði í þrotabúum og dánarbúum, og tekur að sér hagsmunagæslu í tengslum við hjónaskilnaði og sambúðarslit.
MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI
STARFSFERILL
- Lögmaður, LAGASTOÐ, 2020-
- Sjálfstætt starfandi lögmaður, 1999-2019
- Framkvæmdastjóri Lögmannafélags Íslands, 1990-99
- Ritstjóri lagasafns, 1989-91
- Fulltrúi hjá Ólafi Birgi Árnasyni hrl. á Akureyri, 1986-88
- Störf til sjós og lands á námsárum, meðal annars sem togarasjómaður, farmaður, við uppskipun á fiski, í hvalstöð, á endurskoðendaskrifstofu, við prófarkalestur o.fl.
ÖNNUR STÖRF
- Framkvæmdastjóri úrskurðarnefndar lögmanna, 1999-2011
- Formaður úrskurðarnefndar um gjald vegna ólögmæts sjávarafla, 2001-10
MENNTUN
- Framhaldsnám í lögfræði við Kaupmannahafnarháskóla, 1988-89
- Embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands, 1986
- Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands, 1977
KENNSLA
- Kennsla á námskeiðum til öflunar málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi, 2000-7
TUNGUMÁL
- Enska
- Norðurlandamál