25. september 2020 – Sölvi Davíðsson gætti hagsmuna Samkeppniseftirlitsins fyrir Landsrétti vegna málsóknar Símans hf.

Sölvi Davíðsson lögmaður gætti nýlega hagsmuna Samkeppniseftirlitsins fyrir Landsrétti í máli sem Síminn hf. höfðaði á hendur Samkeppniseftirlitinu, Sýn hf., Nova hf. og Sendafélaginu ehf. Með dómi Landsréttar uppkveðnum í dag var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu stefndu af kröfum Símans hf.